Monthly Archives

mars 2026

Sveinspróf í flugvélavirkjun verður haldið helgina 9-10. maí næstkomandi, ef næg þátttaka næst.

Eftir Fréttir

Undirbúningsámskeið fer fram dagana 4., 6, og 7. maí, milli kl. 17:30 – 21:30 í aðstöðu Tækniskólans að Árleyni 4, 112 Reykjavík.

Umsóknir þurfa að berast fyrir 25. apríl 2026. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu félagsins, undir Eyðublöð og sendist til Flugvirkjafélag Íslands, Borgartúni 22, 105 Reykjavík, eða á flug@flug.is

Prófgjald kr. 5.500.- Námskeiðsgjald kr. 35.500.-

Þeir sem hafa verið meðlimir FVFÍ í 6 mánuði greiða ekki námskeiðsgjald.

 

Nánari upplýsingar hjá skrifstofu félagsins í síma 562 1610.

Umsóknir um orlofshús FVFÍ – Sumarúthlutun 2026

Eftir Fréttir

Mánudaginn 16. mars kl. 13:00 verður opnað fyrir umsóknir um sumarúthlutun orlofshúsa á orlofsvef FVFÍ

Opið verður fyrir umsóknir frá kl 13:00 þann 16/03/2026 til kl. 23:59 þann 23/03/2026.

Sumarúthlutun er fyrir tímabilið 28. maí til 27. ágúst.

Úthlutað verður 24. mars en greiðslufrestur er til kl. 11:00 þann 30. mars.

60 punktar dragast frá fyrir úthlutaða viku. Suðursveit hefur ekki punktafrádrátt.

31. mars kl. 13:00 verður opnað fyrir “Fyrstur kemur fyrstur fær” fyrir þá sem fengu höfnun. Þar verða í boði laus tímabil (bæði óúthlutuð og ógreidd eftir úthlutun).

Opnað verður fyrir alla félagsmenn 1. apríl kl. 15:00

 

ATH – Fimmtudagar eru skiptidagar.

Sjá hlekk á orlofsvef:

https://fvfi.orlof.is