
Mánudaginn 16. mars kl. 13:00 verður opnað fyrir umsóknir um sumarúthlutun orlofshúsa á orlofsvef FVFÍ
Opið verður fyrir umsóknir frá kl 13:00 þann 16/03/2026 til kl. 23:59 þann 23/03/2026.
Sumarúthlutun er fyrir tímabilið 28. maí til 27. ágúst.
Úthlutað verður 24. mars en greiðslufrestur er til kl. 11:00 þann 30. mars.
60 punktar dragast frá fyrir úthlutaða viku. Suðursveit hefur ekki punktafrádrátt.
31. mars kl. 13:00 verður opnað fyrir “Fyrstur kemur fyrstur fær” fyrir þá sem fengu höfnun. Þar verða í boði laus tímabil (bæði óúthlutuð og ógreidd eftir úthlutun).
Opnað verður fyrir alla félagsmenn 1. apríl kl. 15:00
ATH – Fimmtudagar eru skiptidagar.
Sjá hlekk á orlofsvef:
