
Líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum hafa Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) og Icelandair komist að samkomulagi um að FVFÍ aflýsi yfirstandandi verkfalli félagsins.
Næstu fjórar vikur munu samningsaðilar koma að samningaborðinu og leggja sitt af mörkum til að ná tökum á þeim sameiginlegu ágreiningsmálum sem komið hafa í veg fyrir að samningar hafi náðst.
Aðilar munu vinna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara og halda áfram vinnu við þær tillögur og hugmyndir sem lagðar voru fram síðustu helgi.
Með samkomulaginu skapast vinnufriður til áframhaldandi viðræðna. FVFÍ bindur vonir við að unnt verði að ljúka viðræðunum með undirritun nýs kjarasamnings og fagnar því að samningsaðilar ætli að koma saman og leggja sitt af mörkum í þeirri viðleitni.
