
Það eru vonbrigði að standa frammi fyrir því að vilja halda samtali gangandi með það að markmiði að finna lausn á deilu en að fá ekkert svar.
Flugvirkjafélag Íslands hefur ítrekað boðist til að funda með Icelandair með það að markmiði að ná sáttum. Það hefur verið eindreginn vilji félagsins að nýta þann tíma sem gefst til að finna lausn við samningaborðið áður en að til vinnustöðvunar kemur. Það hefur enn ekki tekist.
Við höfum einnig boðist til að funda með ráðherrum um málið án árangurs, en höfum þó fengið áheyrn hjá ráðuneytisstjórum í tveimur ráðuneytum.
Icelandair hafnar frestun verkfalls um viku
Um helgina dró til tíðinda í viðræðum milli samningsaðila. Með milligöngu ríkissáttasemjara voru aðilar í þreifingum sem leiddu til þess að ríkissáttasemjari lagði fram innanhússtillögu sem samningsaðilar áttu að vinna að. Flugvirkjafélagið var reiðubúið að vinna áfram með þá tillögu.
Í viðleitni okkar til að skapa samningsaðilum svigrúm buðumst við jafnframt til að fresta boðuðum aðgerðum um sjö sólarhringa. Tilgangurinn var að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með tillöguna og kanna hvort hún gæti leitt til sátta.
Í morgun bárust þau tíðindi að Icelandair hafi hafnað því boði.
Það eru fyrst og fremst vonbrigði en samhliða vekur það upp spurningar um raunverulega stöðu samningsviðræðnanna.
Þegar annar samningsaðilinn er reiðubúinn að leggja sitt af mörkum til að leita leiða til sátta, gefa viðræðunum meiri tíma og vinna með tillögu ríkissáttasemjara, en slíkt svigrúm er ekki þegið þá er eðlilegt að velta fyrir sér hvort raunverulegur samningsvilji sé til staðar.
Mögulega segir staðan okkur að samningsviðræður séu fullreyndar.
Eða mögulega er eitthvað í stöðunni sem við sjáum ekki enn.
Við ætlum ekki að fullyrða um það.
Það er ljóst að það þarf raunverulegan vilja tveggja til að ná samkomulagi.
Við búum yfir þeim vilja.
Síminn minn hringir ekki.
