Tækniskólinn, í samstarfi við Aero-Bildung, býður upp á Part-66 B2 viðbótarnám frá B1.1 vorið 2026. Kennslan fer fram í blönduðu fyrirkomulagi, bæði fjarnámi (online) og staðnámi (onsite), á tímabilinu febrúar – mars.
M4, M5 og M14 eru kennd í fjarnámi, með prófum á staðnum, en M13 fer alfarið fram í staðnámi í Reykjavík dagana 20. mars til 2. apríl í aðstöðu skólans að Árleyni 4, 113 Reykjavík. Daglegir kennslutímar eru kl. 09:00–16:00, með hádegishlé kl. 12:00–13:00.
Námskeiðið er ætlað handhöfum B1.1 réttinda sem vilja bæta við sig B2, og er í samræmi við kröfur EASA Part-66. Skráning er opin og fer fram í gegnum vef Tækniskólans. Síðasti umsóknarfrestur er 29. janúar. Námsgjaldið er 430.000 kr. á hvern þátttakanda, og innifelur það próf og kennslugögn. Námskeiðið verður einungis haldið ef nægilegur þátttakendafjöldi næst.
Frekari upplýsingar má nálgast með fyrirspurn til flugvirkjun@tskoli.is
Áhugasamir geta skráð sig á heimasíðu Tækniskólans: tskoli.is/namskeid/b2
Skipulag námskeiðsins:

