
Í eftirfarandi samantekt er að finna helstu fullyrðingar sem komið hafa fram í opinberri umræðu um kjaradeilu flugvirkja og Icelandair, ásamt svörum og upplýsingum um stöðu mála.
Síðasti kjarasamningur flugvirkja og Icelandair var undirritaður í maí 2020 og gilti í fimm ár, til ársloka 2025. Hann var gerður á meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst og flugvirkjar tóku þá verulegt tillit til stöðu Icelandair. Í samningnum tóku flugvirkjar á sig kjaraskerðingu og gerðu langtímasamning við þessar fordæmalausu aðstæður.
Að undanförnu hafa viðsemjendur okkar tjáð sig um samningaviðræðurnar og sett fram ýmsar staðhæfingar sem við teljum villandi:
- Eru flugvirkjar með 1,4 milljónir króna á mánuði í meðallaun?
Umræða um meðallaun getur gefið villandi mynd af kjörum almenns flugvirkja.
Ríflega þriðjungur flugvirkja Icelandair vinnur dagvinnu í flugskýli. Sem dæmi um laun þeirra má nefna að grunnlaun flugvirkja með sveinspróf og 5 ára starfsreynslu er 698.499 kr. fyrir skatt. Meðaltalið getur innihaldið starfsmenn með mjög ólíkt vinnuframlag, þar á meðal þá sem vinna langar vaktir með vakta- og yfirvinnuálagi og þá sem gegna stjórnunar- eða yfirmannsstörfum.
Þess má geta að flugvirkjar hafa ekki rétt á launaviðtali eða launum umfram kjarasamninga.
- Hafa flugvirkjar dregist aftur úr þegar kemur að launaþróun?
Já, það er ótvírætt og við höfum tölur því til stuðnings. Síðasti samningur var undirritaður í maí 2020 og gilti til ársloka 2025. Flugvirkjar tóku þá ríkt tillit til stöðu Icelandair og samþykktu langtímasamning við fordæmalausar aðstæður. Því sömdu flugvirkjar meðal annars um tveggja ára launafrystingu, enga afturvirkni og enga vísitölutengingu.
Á árunum 2019–2025 hækkuðu grunnlaun flugvirkja hjá Icelandair um 27,2%, en grunnlaun sambærilegra hópa tæknimenntaðra stétta um 50%. En Samtök atvinnulífsins semja við báða þessa hópa.
Flugvirkjar voru því 47.277 kr. yfir samanburðarhópnum árið 2019 en 40.500 kr. undir honum árið 2025.
Við viljum leiðrétta þessa skekkju og semja um eðlilega launaþróun til framtíðar.
- Eru flugvirkjar að biðja um 25–30% launahækkun á næstu tveimur árum?
Nei. Það er villandi framsetning.
Icelandair hefur metið kostnað við kröfur flugvirkja, en það er ekki það sama og að flugvirkjar séu að krefjast 25–30% beinnar launahækkunar. Flugvirkjar eru ekki að koma inn í þessa samningalotu frá sama upphafspunkti og aðrir. Þeir tóku á sínum tíma á sig stórt högg til að styðja við Icelandair þegar illa áraði með tilheyrandi skerðingu á launaþróun.
Það er ekki hægt að horfa eingöngu á nýja prósentuhækkun án þess að horfa á launaþróunina sem leiddi hingað.
- Eru viðræður að stranda á háum launakröfum flugvirkja?
Nei. Deilan snýst um meira en laun.
Icelandair hefur lagt fram kröfur um aukið vald yfir störfum og vöktum flugvirkja, meðal annars:
- rýmri heimildir til að nota verktaka,
- að geta breytt vaktafyrirkomulagi án samráðs við flugvirkja,
- að stytta vaktir, meðal annars úr 12 klukkustundum í 10.
Þetta getur haft áhrif á tekjur, fjölda vinnudaga og fyrirsjáanleika í fjölskyldulífi.
Því er villandi að lýsa deilunni eingöngu sem deilu um launahækkun.
- Af hverju eruð þið að beita verkfalli núna?
Vegna þess að við höfum reynt að semja í marga mánuði og viðræðurnar hafa strandað.
Verkfallsréttur er lögbundinn réttur launafólks og mikilvægur hluti af íslensku vinnumarkaðskerfi. Verkfall er alvarlegt lokaúrræði og félagsmenn taka slíka ákvörðun ekki léttvægt.
Flugvirkjar hafa ekki gripið til verkfalls sem fyrsta úrræðis. Þeir hafa setið við samningaborðið í marga mánuði og reynt að ná samkomulagi. Verkfallsheimildin kom fyrst eftir að samningaviðræður höfðu strandað.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var skýr: 88,3% félagsmanna samþykktu verkfallsheimild. Það eru skýr skilaboð frá félagsmönnum eftir margra mánaða árangurslausar samningaviðræður.
Verkfallsréttur er því ekki „verkfallsvopn“ sem gripið er til af léttúð. Hann er lögbundið lokaúrræði þegar aðrir möguleikar til að ná samkomulagi hafa verið reyndir.
Að lokum
Verkfall er ekki markmiðið. Við viljum semja. Flugvirkjar hafa sent skýr skilaboð og nú vonumst við til þess að Icelandair taki þeim skilaboðum alvarlega og komi aftur að samningaborðinu. Við erum tilbúin.
