Tilkynning vegna yfirstandandi verkfalls

Eftir september 23, 2026Fréttir

Verkfall flugvirkja Icelandair hófst á miðnætti í nótt. Samningsaðilar áttu, ásamt ríkissáttasemjara, í virku samtali í gær og fram eftir kvöldi í þeirri viðleitni að afstýra boðaðri vinnustöðvun.

Flugvirkjafélag Íslands hafði áður boðið sjö daga frestun á vinnustöðvun og bauð um miðjan dag í gær að fresta aðgerðum um 14 daga, að því gefnu að unnið yrði að markvissum og stífum samningsviðræðum á grundvelli miðlunartillögu ríkissáttasemjara.

Því boði var hafnað af hálfu Icelandair í gær.

Flugvirkjafélag Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með niðurstöðu gærdagsins. Það er döpur niðurstaða að þrátt fyrir þann vilja hafi ekki tekist að ná samkomulagi.

Flugvirkjafélag Íslands mun áfram leggja áherslu á að leita lausnar við samningaborðið og er tilbúið til viðræðna þegar vilji er til staðar af hálfu beggja samningsaðila.

Það þarf tvo til að ná samkomulagi. Flugvirkjafélagið hefur sýnt að það er tilbúið að halda áfram að leita lausnar.

Share