Staða kjaraviðræðna við Icelandair

Eftir september 11, 2026Fréttir

Kjaraviðræður Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ) og SA/Icelandair hafa verið í biðstöðu frá því að slitnaði upp úr viðræðum hjá ríkissáttasemjara 22. júní síðastliðinn. Í millitíðinni hefur óformlegt samtal átt sér stað milli aðila án árangurs. Flugvirkjar hafa nú verið samningslausir frá síðustu áramótum.

Þetta er ekki sú staða sem félagið hefði viljað sjá. Frá upphafi hefur áherslan verið á að ná nýjum kjarasamningi sem tekur mið af hagsmunum beggja aðila. Jafnframt er það hlutverk FVFÍ að standa vörð um hagsmuni félagsmanna, tryggja að kjör þeirra, vinnufyrirkomulag og að sérþekking sé metin að verðleikum.

Kjaraviðræðurnar snúast ekki eingöngu um laun. Ágreiningur hefur meðal annars verið um vaktakerfi, notkun verktaka og hvernig störf og verkefni flugvirkja verða skipulögð til framtíðar. Þetta eru mikilvæg atriði sem hafa bein áhrif á starfsumhverfi og tekjur félagsmanna.

Í síðasta kjarasamningi tóku flugvirkjar tillit til stöðu Icelandair eftir heimsfaraldurinn. Þeir féllu meðal annars frá kröfum um afturvirkni og verðtryggingu og sömdu til lengri tíma en ella. Með því var Icelandair veitt svigrúm á erfiðum tímum. Þessi samningur hefur þó dregið dilk á eftir sér og hafa flugvirkjar dregist verulega aftur úr þegar kemur að launakjörum. Grunnlaun flugvirkja hjá Icelandair hafa ekki þróast með sambærilegum hætti og hjá samanburðarhópum.

Flugvirkjar vilja sjá Icelandair dafna og eiga mikilla hagsmuna að gæta af því að félagið sé öflugt og samkeppnishæft. Það breytir því ekki að sanngjarnt er að gera kröfu um að hagsmunir flugvirkja séu einnig teknir alvarlega.

Sérþekking og störf til framtíðar

Samhliða kjaraviðræðunum hefur FVFÍ lýst yfir áhyggjum af áformum Icelandair um að flytja sérfræði- og tæknistörf úr landi.

Um er að ræða verðmæta sérþekkingu sem hefur byggst upp innan Icelandair yfir langan tíma. Það tekur mörg ár að byggja upp þá reynslu og sérhæfingu sem býr í starfsfólkinu og því skiptir máli hvernig staðið er að uppbyggingu og varðveislu þessarar þekkingar til framtíðar.

Þetta snýst ekki aðeins um einstök störf heldur um hvar tæknileg þekking, ábyrgð og framtíðarverkefni innan Icelandair verða til og byggjast upp. Með tilflutningi starfa getur einnig skapast hætta á félagslegu undirboði og gerviverktöku.

Af þeim sökum hefur FVFÍ einnig sent formlegt erindi til framkvæmdastjóra og stjórnarformanna þeirra níu lífeyrissjóða sem eiga hlut í Icelandair Group og kallað eftir því að þeir kynni sér áformin um flutning sérhæfðra tæknistarfa, þekkingar og framtíðarverkefna úr landi.

Vilji til lausnar

Markmið FVFÍ er áfram að ná kjarasamningi við Icelandair. Félagið hefur sýnt vilja til að taka tillit til stöðu Icelandair þegar á hefur reynt og mun áfram leita leiða til að ná niðurstöðu sem báðir aðilar geta unað við.

Um leið þarf að standa vörð um kjör félagsmanna, starfsumhverfi þeirra og þá sérþekkingu sem byggst hefur upp innan Icelandair.

Sterkt Icelandair og öflugir flugvirkjar fara saman. Það er sameiginlegur hagur að byggja áfram upp þekkingu, störf og starfsemi hér á landi.

Til þess þarf gagnkvæma virðingu, sanngirni og raunverulegt samráð.

Share