Opið bréf til lífeyrissjóða – eigenda Icelandair

Eftir nóvember 13, 2026Fréttir

Við undirrituð, fyrir hönd Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ), Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ), höfum áhyggjur af þeirri stefnu sem Icelandair virðist vera að taka og áhrifum hennar á starfsfólk, íslenskan vinnumarkað og framtíð íslenskrar flugstarfsemi.

Icelandair er eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins og gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi. Samskipti félagsins við stéttarfélög starfsfólks hafa um árabil verið krefjandi. Núverandi staða vekur áhyggjur sem ná langt út fyrir hefðbundnar kjaradeilur.

Þótt flugvirkjar, flugmenn og flugfreyjur og -þjónar eigi í ólíkum kjaraviðræðum við félagið eiga stéttirnar sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að framtíð íslenskrar flugstarfsemi, starfsöryggi og virðingu fyrir samningsrétti starfsfólks.

Árið 2020 stóð Icelandair frammi fyrir miklum rekstrarerfiðleikum. Þá lagði íslenskt samfélag félaginu lið með stuðningi við fjármögnun þess og starfsfólk tók á sig verulegar fórnir. Það framlag má ekki gleymast.

Samningsvilji og virðing fyrir starfsfólki

Kjarasamningar flugmanna og flugfreyja og -þjóna hafa verið lausir frá hausti 2025 og samningar flugvirkja frá árslokum 2025. Viðræður hafa gengið hægt og ágreiningur er enn óleystur. Þótt ágreiningsefnin séu ólík er áhyggjuefni að lítið virðist þokast í átt að niðurstöðu og skortur virðist vera á raunverulegum samningsvilja.

Flugvirkjar boðuðu til verkfalls í september. Að boða til verkfalls er alls ekki léttvæg ákvörðun. Þegar slíkt ferli er sett af stað þá er ekki ætlunin að skaða mótaðilann heldur reyna að fá hann að samningaborðinu til að klára samningagerð. Aðdragandinn er alltaf einhverjir 10 dagar, það þarf að kjósa og svo boða með 7 sólarhringa fyrirvara. Á þessum tíma heyrðist lítið sem ekkert frá fulltrúum Icelandair, ekki fyrr en rétt áður en verkfall hófst.

FVFÍ bauð tvívegis frestun verkfalls til að skapa svigrúm fyrir frekari viðræður. Báðum tilboðum var hafnað. Verkfall hófst 23. september, en sama dag lá fyrir að ríkisstjórnin hygðist leggja fram frumvarp um bann við því. Í kjölfarið var verkfallinu aflýst og aðilar sömdu um að verja fjórum vikum til markvissra viðræðna samkvæmt sérstakri verkáætlun. Þær viðræður leiddu hins vegar ekki til samnings. Icelandair hefur síðan greint frá því að verkfallið hafi kostað félagið um hálfan milljarð króna og forstjórinn nefndi það meðal þeirra þátta sem drógu úr afkomu þriðja ársfjórðungs. Það tjón hefði mátt forðast. Hefði félagið þegið annað hvort frestunartilboðið hefði gefist tími til samninga án þess að eitt einasta flug félli niður.

Staðan í viðræðum við flugvirkja er sú að það 4 vikna samtal sem hófst þegar verkfalli var aflýst lauk 21. október og skilaði ekki þeim árangri sem vonir stóðu til. Síðasti fundur var haldinn hjá ríkissáttasemjara 10. nóvember. Deilan er í hnút og ekki verður boðað til frekari funda hjá embættinu nema aðilar óski þess sérstaklega.

Staðan í viðræðum við flugmenn er einnig alvarleg. FÍA hefur lýst viðræðunum sem árangurslausum og greint frá því að félagið hafi lagt fram mismunandi leiðir til að ná samningi, en Icelandair hafnað þeim öllum. Flugmenn hafa samþykkt ótímabundnar vekfallsaðgerðir, frá og með 20. nóvember, sem afmarkast við leiguflug fyrir þriðja aðila.

Aðkoma Icelandair að kjaraviðræðunum við FÍA vekur einnig alvarlegar spurningar. Félagið hefur farið fram hjá samninganefnd FÍA og sent tillögur sínar beint til flugmanna, í stað þess að eiga samskipti við lögformlegan samningsaðila þeirra. Með þessu er vegið að hlutverki stéttarfélagsins sem fulltrúa félagsmanna sinna. Slík vinnubrögð eru ekki til þess fallin að skapa traust eða stuðla að árangursríkum samningaviðræðum.

Staða viðræðna við FFÍ er á öðrum stað en við FVFÍ og FÍA þar sem þeim hefur ekki enn verið lýst sem árangurlausum eða vísað til ríkissáttasemjara. Áherslur FFÍ lúta helst að bættu starfsumhverfi flugfreyja og – þjóna með tilliti til flug-, vakt- og hvíldartíma áhafna. FFÍ tekur heilshugar undir að þær aðferðir sem Icelandair hefur beitt gegn FÍA með því að ganga fram hjá lögformlegum samningaaðila þeirra og senda tillögur beint til flugmanna, séu ekki til þess fallnar að liðka til fyrir samningssátt.

Icelandair hefur í fjölmiðlum lýst kröfum flugstéttanna sem óraunhæfum og vísað til mikilla launahækkana á Íslandi. Það sem helst stendur út af snýst þó ekki fyrst og fremst um laun. Í viðræðum við flugvirkja er deilt um vaktafyrirkomulag. Í viðræðum við flugmenn hefur félagið lagt áherslu á heimild til að leigja inn erlendar áhafnir og aukinn sveigjanleika í hvíldarreglum. Þegar á reynir er Icelandair því ekki að verjast kostnaðarhækkunum, heldur að sækja sér hagræðingu á kostnað vinnuaðstæðna og starfsöryggis.

Hver er framtíðarsýn Icelandair fyrir störf á Íslandi?

Áhyggjur okkar snúast ekki aðeins um kjaraviðræður heldur einnig um stefnu félagsins til framtíðar. Icelandair hefur meðal annars stofnað dótturfélag í Litháen sem sinnir verkefnum tengdum skipulagi og eftirliti með viðhaldi flugvéla og keypt 49% hlut í Fly Play Europe, sem veitir aðgang að maltnesku flugrekstrarleyfi.

Í nýlegu viðtali lýsti forstjóri Icelandair Möltu sem vettvangi nýrra tækifæra fyrir félagið. Hann sagði jafnframt að til þess að þau tækifæri gætu orðið að veruleika þyrftu kjarasamningar að breytast. Forstjórinn hefur einnig hafnað því að verið sé að flytja störf úr landi. Svörin hafa þó ekki verið á einn veg. Í maí sagði félagið að kaupin myndu ekki leiða til fækkunar starfa, en í ágúst gat forstjórinn ekki fullyrt hvort íslenskar áhafnir myndu manna leiguflug á maltneska leyfinu. Það ætti eftir að koma í ljós.

Þessi ummæli kalla á skýrari upplýsingar um fyrirætlanir félagsins. Það þarf að liggja fyrir hvaða tækifæri Icelandair sér á Möltu, hvaða breytingar á kjarasamningum eru forsenda þeirra og hvernig tryggja eigi að uppbyggingin verði viðbót við íslenska starfsemi en ekki á kostnað hennar.

Það er eðlilegt að Icelandair leiti leiða til að efla samkeppnishæfni sína og nýta ný tækifæri. Slík uppbygging verður hins vegar að byggja á skýrum forsendum og gagnsæi gagnvart starfsfólki og eigendum. Við höfum jafnframt áhyggjur af því að starfsemi erlendis verði nýtt til að komast hjá skyldum atvinnurekenda samkvæmt íslenskum vinnurétti. Þær áhyggjur eru ekki okkar einna. Evrópusamtök flugmanna (ECA) og Evrópusamtök starfsfólks í samgöngum (ETF) hafa ítrekað varað við ótryggum ráðningarkjörum og veiku eftirliti í flugrekstri tengdum Möltu. Tryggja þarf að réttindi starfsfólks og ákvæði kjarasamninga séu virt og að rekstrarform verði ekki leið til að veikja samningsstöðu íslenskra stéttarfélaga.

Þetta snýst um meira en einstök störf. Á Íslandi hefur byggst upp mikilvæg sérþekking á sviði flugrekstrar, viðhalds og þjónustu. Ef störf og verkefni flytjast úr landi er hætta á að sú þekking veikist hér, með áhrifum á innlenda verðmætasköpun, skatttekjur og iðgjöld til íslenskra lífeyrissjóða.

Sem eyþjóð erum við háð áreiðanlegum flugsamgöngum við umheiminn. Það er mikilvægt fyrir viðnámsþrótt Íslands að hér sé áfram til staðar sú þekking og geta sem þarf til að sinna flugrekstri, viðhaldi flugvéla og þjónustu við farþega. Framtíð íslenskrar flugstarfsemi er því mikilvægt samfélagslegt hagsmunamál, ekki eingöngu rekstrarákvörðun eins fyrirtækis.

Ábyrgð eigenda

Lífeyrissjóðirnir, sem eigendur Icelandair, geta ekki litið fram hjá þessari þróun. Þótt það sé ekki hlutverk þeirra að semja um kaup og kjör starfsfólks bera þeir ábyrgð á að kalla eftir skýrri framtíðarsýn, vönduðum stjórnarháttum og upplýsingum um langtímahagsmuni félagsins.

Hafa lífeyrissjóðirnir sem eigendur Icelandair óskað eftir upplýsingum um hvort fyrirhuguð uppbygging starfsemi erlendis sé liður í langtímastefnu um að færa störf og þjónustu úr landi? Ef svo er, hafa þeir metið áhrif þeirrar stefnu á íslenskt atvinnulíf og hagsmuni sjóðfélaga? Ef ekki, hvernig á að tryggja að uppbyggingin á Möltu og í Litháen verði viðbót við starfsemina á Íslandi fremur en staðgengill hennar?

Við beinum því þremur skýrum áskorunum til lífeyrissjóðanna:

  1. Kallið eftir skýrri framtíðarsýn. Krefjist upplýsinga um langtímastefnu Icelandair varðandi störf og starfsemi á Íslandi, uppbyggingu erlendis og áhrif hennar á íslenskt atvinnulíf.
  2. Standið vörð um réttindi starfsfólks. Kallið eftir skýrum svörum um hvernig félagið hyggst virða kjarasamninga, samningsrétt stéttarfélaga og réttindi starfsfólks í starfsemi sinni hér á landi og erlendis.
  3. Krefjist raunverulegs samningsvilja. Beitið ykkur fyrir því að Icelandair eigi málefnalegar og markvissar viðræður við stéttarfélög starfsfólks og sýni raunverulegan vilja til að ná samningum.

Starfsfólk Icelandair vill sjá félagið dafna og eiga þar framtíð. Til þess þarf félagið að byggja á þeirri sérþekkingu sem hér hefur orðið til, virða starfsfólk sitt og líta á stéttarfélögin sem lögmæta samstarfs- og samningsaðila.

Spurningin er ekki aðeins hvaða framtíð Icelandair ætlar að byggja sér, heldur hvaða framtíð eigendur þess vilja sjá fyrir íslenska flugstarfsemi.

Virðingarfyllst,

Óskar Einarsson , formaður Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ)

Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA)

Berglind Kristófersdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ)

Share