Fyrirhugaður flutningur sérfræði- og tæknistarfa úr landi

Eftir júní 4, 2026Fréttir

Flugvirkjafélga Íslands hefur skorað á forsvarsmenn Icelandair að hverfa frá þeim áformum sínum að flytja sérfræði- og tæknistörf úr landi. Í bréfi sínu bendir FVFÍ á að um verðmæt störf er að ræða sem búa yfir mikilli þekkingu á flota fyrirtækisins. Það má vel rökstyðja mikilvægi þess að hafa góða að greiningu á milli flota Icelandair og véla í verkefnum fyrir aðra flugrekendur. En það eru hæg heimatökin að koma þeirri aðgreiningu á hér heima hafi menn vilja til þess.

FVFÍ leggur áherslu á að félagið lítur þetta mál alvarlegum augum. Hér er ekki aðeins um að ræða innri skipulagsbreytingu heldur stefnumarkandi ákvörðun um hvar tæknileg þekking, ábyrgð og störf innan Icelandair-samstæðunnar eigi að vera til framtíðar.

Þessu til viðbótar hefur FVFÍ sent formlegt bréf til framkvæmdastjóra og stjórnarformanna þeirra 9 lífeyrissjóða sem eiga hlut í Icelandair Group. FVFÍ kallar eftir því að sjóðirnir kynni sér áætlanir Icelandair um flutning sérhæfðra tæknistarfa, þekkingar og framtíðarverkefna úr landi.

Share