Flugvirkinn

Eftir september 23, 2026Fréttir

Tæknistarf í hátækniiðnaði

Boðað verkfall flugvirkja hjá Icelandair hefur beint sjónum að starfsstétt sem flestir flugfarþegar hugsa sjaldan um. Umræðan snýst eðlilega að miklu leyti um áhrif þess á flugáætlun, farþega og ferðaþjónustu. En hún er um leið tilefni til að spyrja einfaldari spurningar: Hvað gerir flugvirki í raun og veru – og hvers vegna skiptir starfið svona miklu máli?

Þegar flugvél lyftir sér frá flugbrautinni beinist athyglin gjarnan að flugmönnunum og áhöfninni.

Mun færri hugsa til þeirra sem skoðað hafa vélina, greint bilanir, framkvæmt prófanir og staðfest að hún sé tilbúin til flugs. Þar gegna flugvirkjar lykilhlutverki. Þeir eru ein af ósýnilegu lykilstéttunum í flugöryggi. Því miður höfum við þó séð að þekking flugvirkja, ábyrgð og sú mikla menntun og þjálfun sem að baki starfinu liggur, er oft vanmetin.

Hátæknistarf sem krefst sífelldrar menntunar

Flugiðnaðurinn er meðal tæknilegustu og flóknustu atvinnugreina heims. Í nútímaflugvél mætast vélfræði, rafmagnsfræði, rafeindatækni, hugbúnaður, sjálfvirkni og háþróuð stjórnkerfi í einni samþættri heild. Flugvirkinn þarf ekki aðeins að þekkja einstök kerfi heldur einnig að skilja hvernig þau vinna saman og hvernig bilun í einum hluta getur haft áhrif annars staðar í vélinni.

Þá ber að hafa í huga að menntun flugvirkja lýkur ekki þegar grunnnámi eða sveinsprófi lýkur. Starfsævin einkennist af áframhaldandi sérnámi, réttindum, þjálfun og endurmenntun eftir því hvaða flugvélum, kerfum og verkefnum viðkomandi sinnir. Ný tækni kallar jafnframt stöðugt á nýja þekkingu.

B1 og B2 – Víðtæk sérfræðiþekking

Í evrópsku réttindakerfi flugvirkja eru meðal annars B1- og B2- réttindi. Til að öðlast þau réttindi þarf að sitja veigamikil námskeið fyrir hverja flugvélatýpu. B1-flugvirkjar vinna að stórum hluta með hreyfla, vökvakerfi, lendingarbúnað, eldsneytiskerfi og önnur vélræn og rafvélræn kerfi. B2-flugvirkjar sérhæfa sig í raf- og rafeindakerfum, svo sem flugtölvum, sjálfstýringu, leiðsögu, fjarskiptum, skjákerfum og stafrænum gagnaflutningi.

Flugvirki sem vinnur á flóknum farþegaþotum byggir því upp sérþekkingu á löngum tíma – þekkingu sem þarf jafnframt að viðhalda alla starfsævina.

Þeir sem hafa bæði B1- og B2-réttindi búa því yfir einstaklega breiðri tæknilegri þekkingu.

Bilanagreining er tæknileg rannsókn

Einn mikilvægasti þáttur starfsins er bilanagreining. Viðvörun í stjórnklefa segir ekki alltaf hvar raunverulega bilunin liggur. Orsökin geta verið skynjari, víralögn, tengi, aflgjafi, stjórntölva eða jafnvel annað kerfi sem sendir rangar upplýsingar.

Flugvirkinn þarf að lesa bilanagögn, kerfislýsingar og rafmagnsteikningar, framkvæma mælingar og prófanir og finna rót vandans. Í nútímaflugvél vinna fjölmargar tölvur og stjórneiningar saman og skiptast stöðugt á upplýsingum. Þær stjórna meðal annars hreyflum, rafkerfum, flugstýringum, leiðsögu, loftkerfum og viðvörunum. Starfið krefst því þekkingar sem spannar vélfræði, rafmagns- og rafeindatækni, tölvunet og hugbúnaðarstýrð kerfi, svo ekki sé minnst á reynslu og rökhugsun.

Flugvélin sem ein heild

Ekki er alltaf nóg að vinna við flugvél sem stendur rafmagnslaus við stæði. Sumar bilanir koma aðeins fram þegar hreyflar eru í gangi, rafalar undir álagi, vökvakerfi á fullum þrýstingi eða margar stjórntölvur virkar samtímis. Þá þarf að koma flugvélinni í rétt rekstrarástand, kalla bilunina fram og sannreyna að viðgerðin hafi leyst vandann.

Eftir starfi og heimildum fá flugvirkjar sérstaka þjálfun í hreyflakeyrslu, færslu og akstri flugvéla og verklagi á akbrautar og flugbrautarsvæðum. Hluti þeirrar þjálfunar getur farið fram í hermi, þar sem hægt er að æfa eðlilega starfsemi, bilanir og óvenjulegar aðstæður með öruggum hætti.

Sú ímynd að flugvirkjun snúist fyrst og fremst um hefðbundnar vélaviðgerðir er því fjarri raunveruleikanum. Nútímaflugvél er ekki safn aðskildra íhluta heldur flókin heild hátæknikerfa sem þarf oft að prófa við raunaðstæður.

Margir sérfræðingar sem vinna að sama markmiði

Vinna flugvirkja fer ekki aðeins fram við flugvélina á stæði eða í flugskýli. Innan flugviðhalds starfar fólk á fjölbreyttum sérsviðum. Þar má nefna hreyfla, burðarvirki, raf- og rafeindakerfi, hjól og bremsur og sérhæfðar skoðanir á efnum og íhlutum.

NDT er sem dæmi sérstakt og mikilvægt svið flugviðhalds. Með aðferðum á borð við penetrant prófanir, segulagnaprófanir, hljóðbylgjuprófanir og röntgenskoðanir. Þannig er hægt að greina örsmáa galla sem sjást ekki með berum augum en gætu síðar þróast í alvarlegt vandamál.

Við stærri skoðanir í flugskýli (base maintenance) er síðan unnið kerfisbundið að fjölmörgum þáttum flugvélarinnar. Burðarvirki, hreyflar, lendingarbúnaður, rafkerfi, vökvakerfi og stjórnbúnaður geta meðal annars komið til skoðunar eftir viðhaldsáætlunum og tæknilegum kröfum.

Að baki einni flugvél sem fer örugglega aftur í rekstur getur því legið vinna fjölda sérfræðinga með ólíka menntun og réttindi.

Öryggi og ábyrgð framar öllu

Þegar bilun kemur upp rétt fyrir brottför getur tímapressan verið mikil. Farþegar bíða, flugáætlun raskast og tafir geta verið kostnaðarsamar.

Hlutverk flugvirkjans er ekki að láta þrýstinginn ráða niðurstöðum. Ákvörðun flugvirkjans verður alltaf að byggjast á tæknilegum gögnum, samþykktu verklagi og þeim kröfum sem gilda um flughæfi:

Ef ekki er hægt að staðfesta að flugvélin uppfylli kröfur fer hún ekki í loftið.

Öryggi verður að ganga framar stundvísi og fjárhagslegum sjónarmiðum.

Í flugviðhaldi er ekkert gert eftir ágiskun. Verk eru unnin samkvæmt samþykktum tæknigögnum og niðurstöður eru skjalfestar og rekjanlegar. Þegar réttindabær flugvirki vottar verk staðfestir hann með nafni sínu og starfsréttindum að verkið hafi verið unnið rétt og að viðkomandi kerfi/loftfar uppfylli settar kröfur. Þetta er ekki einföld undirskrift heldur staðfesting sem fylgir mikil fagleg ábyrgð.

Hvort sem flugvirkinn starfar við hreyfla, burðarvirki, rafeindakerfi, hjól og bremsur, NDT eða bilanagreiningu við sjálfa flugvélina er hann hluti af sömu öryggiskeðju. Flugvirkjun er því ekki eitt afmarkað starf heldur fjölbreyttur heimur sérhæfðrar hátækni, þar sem ólík fagsvið vinna saman að einu meginmarkmiði, það er að tryggja að flugvélin sé flughæf.

Í aðdraganda boðaðs verkfalls flugvirkja er eðlilegt að rætt sé um röskun, kostnað og áhrif á ferðalög. Sú umræða varpar um leið ljósi á hvers vegna starf flugvirkja hefur svo mikil áhrif. Þetta er sérhæft starf sem krefst áralangrar uppbyggingar þekkingar, formlegra réttinda, stöðugrar þjálfunar og mikillar ábyrgðar.

Farþeginn sér sjaldnast þá vinnu. Hann sér ekki bilanagreininguna, prófanirnar, tæknigögnin eða þjálfunina sem liggur að baki. Þegar allt gengur eins og það á að gera er starf flugvirkjans að mestu ósýnilegt.

Kannski er það einmitt merki um að starfið hafi verið unnið vel.

 

Guðmundur Arason

Flugvirki B1/B2

Share