Vinnustöðvun samþykkt með miklum meirihluta

Eftir september 14, 2026Fréttir

Flugvirkjar hjá Icelandair hafa samþykkt boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar með 88,3% greiddra atkvæða. Kjörsókn var 92%. Vilji félagsmanna er því skýr og hefst vinnustöðvunin að öllu óbreyttu kl. 00:01 miðvikudaginn 23. september næstkomandi.

Föstudaginn 11. september sl. var efnt til rafrænnar kosningar meðal félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands sem starfa hjá Icelandair. Í kosningunni var borið undir félagsmenn hvort þeir styddu boðun ótímabundinnar vinnustöðvunar.

Icelandair, Samtökum atvinnulífsins og ríkissáttasemjara hefur verið tilkynnt um niðurstöður kosningarinnar.

Flugvirkjar starfandi hjá Icelandair hafa staðið í kjaradeilu við fyrirtækið undanfarna mánuði. Kjarasamningar urðu lausir um síðustu áramót en viðræður aðila hófust í nóvember 2025. Þann 13. febrúar vísaðu Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir hönd Icelandair, deilunni til ríkissáttasemjara. Þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara hefur lítið miðað í deilunni. Eftir fund hjá ríkissáttasemjara þann 22. júní slitnaði upp úr viðræðum milli aðila.

Share