Leyfum flugvirkjum að kjósa í friði

Eftir september 14, 2026Fréttir

Á hádegi lýkur leynilegri atkvæðagreiðslu flugvirkja um hvort boða skuli til verkfalls. Hver félagsmaður tekur þar sjálfstæða afstöðu til kjaradeilunnar og kýs með eða á móti. Verkfall er lögbundið úrræði í kjaradeilu þegar samningsviðræður hafa ekki skilað niðurstöðu að ákveðnum lagaskilyrðum uppfylltum.

Flugvirkjafélag Íslands lýsir yfir vonbrigðum sínum með framgöngu og yfirlýsingar forstjóra Icelandair á meðan kosningin stendur yfir. Þá hafnar Flugvirkjafélag Íslands einnig  þeirri staðhæfingu forstjóra Icelandair að launakröfur flugvirkja séu óhóflegar eða kjör félagsmanna hafi þróast í takt við kjör samanburðastétta.

Icelandair er frjálst að upplýsa um mögulegar afleiðingar verkfalls en þegar talað er um að verkfall geti „næstum lokað landinu“ og teiknuð er upp alvarleg staða fyrir íslenskt samfélag vegna hugsanlegs verkfalls með afleiðingum fyrir ferðaþjónustu, atvinnulíf og efnahag er ástæða til að staldra við.

Slík framsetning er varhugaverð og óábyrg.

Félagsmenn eru flestir starfsmenn Icelandair og eru nú að taka ákvörðun um hvort þeir séu tilbúnir að leggja niður störf í kjaradeilu. Þegar jafnframt er lögð á þá ábyrgð á hugsanlegum áhrifum á íslenskt efnahagslíf getur það verið til þess fallið að hafa áhrif á atkvæðagreiðsluna, hvort sem það er ætlunin eða ekki.

Flugvirkjar eru ekki að kjósa um það hvort Ísland verði opið eða lokað. Flugvirkjar loka ekki landinu. Verkfall myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi Icelandair, en Icelandair er ekki eina flugfélagið sem flýgur til og frá Íslandi. Áhrifin geta verið mikil án þess að ein starfsstétt hafi þar með í höndum sér að „loka landinu“.

Af hverju er þessi staða komin upp?

Flugvirkjar hafa reynt að semja. Viðræður hafa staðið yfir án árangurs og deilan hefur verið hjá ríkissáttasemjara frá því í febrúar. Verkfall er lögbundið úrræði í kjaradeilu þegar samningsleiðin hefur ekki skilað niðurstöðu og lagaskilyrði eru uppfyllt.

Þetta er því ekki ákvörðun sem stéttarfélagið tekur fyrirhönd félagsmanna. Nú eru það félagsmennirnir sjálfir sem kjósa.

Icelandair segir tímasetninguna slæma. September sé háannatími, flugvélar fullbókaðar og mikið álag á starfsemina. Það er skiljanlegt að félagið vilji verja rekstur sinn. En ef háannatíminn er alltaf of viðkvæmur og rólegri tímar ársins of erfiðir, þá er eðlilegt að spyrja: Hvenær er rétti tíminn?

Icelandair hefur greint frá mettekjum, metfjölda farþega og sterkri eftirspurn, þótt félagið standi jafnframt frammi fyrir raunverulegum kostnaðaráskorunum. Það er því eðlilegt að ræða hvernig verðmæti, áhætta og hagræðing skiptast milli félagsins og starfsfólks þess.

Flugvirkjar hafa ríka hagsmuni af því að Icelandair vegni vel. Þeir hafa ávallt staðið með félaginu þegar mikið liggur við og vita hversu mikilvægt það er að starfsemi þess sé traust til framtíðar.

Samhliða hafa breytingar á starfsemi félagsins, meðal annars stofnun dótturfélags Icelandair í Vilníus og umræða um mögulega útvistun verkefna, vakið eðlilegar spurningar um framtíð starfa flugvirkja og atvinnuöryggi.

Þetta snýst því um meira en eina launatölu og þegar forstjóri Icelandair vill jafnframt taka upp stærri umræðu um íslenskt vinnumarkaðslíkan er mikilvægt að þeirri umræðu verði ekki varpað yfir á eina starfsstétt.

Flugvirkjar hafa reynt að semja. Nú taka þeir sjálfir ákvörðun um næstu skref.

Leyfum þeim að kjósa í friði!

Formaður samninganefndar Flugvirkjafélags Íslands

Share