Skip to main content

24. maí – Alþjóðlegur dagur flugvirkja

Eftir maí 23, 2025Fréttir

Öruggt flug hefst á jörðinni

Þann 24. maí ár hvert er haldinn Alþjóðlegur dagur flugvirkja (Aircraft Maintenance Technician Day) til heiðurs Charles E. Taylor, fyrsta flugvirkjanum sem smíðaði hreyfilinn í fyrstu flugvél Wright-bræðra árið 1903 og öllum þeim sem starfa á bakvið tjöldin við viðhald flugvéla á degi hverjum. Við viljum nota þetta tækifæri til að beina kastljósi að starfsgreininni sem er lykilþáttur í öruggum og áreiðanlegum flugrekstri, bæði á Íslandi og á heimsvísu.

Ósýnileg fagmennska – sýnilegt mikilvægi

Vinna flugvirkja fer yfirleitt fram fjarri augum almennings. En störf þeirra eru forsenda þess að farþegar, áhafnir og flugvélar komist leiðar sinnar með öruggum hætti. Á hverjum degi sinna íslenskir flugvirkjar viðhaldi, bilanagreiningu og skoðunum á hinum ýmsu loftförum um allan heim – frá breiðþotum í millilandaflugi til minni loftfara í atvinnu-, björgunar-, kennslu- og einkaflugi.
Flugvirkjun krefst mikillar sérþekkingar, nákvæmni og símenntunar. Hún snýst ekki einungis um tæknilega færni – heldur einnig persónulega ábyrgð, dómgreind, öryggisvitund og fagleg vinnubrögð þar sem öryggi og velferð farþega, áhafna og annara er í húfi.

Íslenskar aðstæður kalla á öfluga starfsgrein

Verandi eyja norður í Atlantshafi treystir Ísland á flugrekstur í meira mæli en flest önnur lönd – fyrir ferðaþjónustu, vöruflutninga, sjúkraflug og almennar samgöngur. Flugvirkjar eru þar mikilvægur hlekkur í þeirri keðju hagkerfisins og mikilvæg stoð í því að flug njóti alþjóðlegs trausts. Á tímum þróunar reglugerðaumhverfis, orkuskipta og nýrrar tækni í flugheiminum, er ljóst að framtíð iðngreinar flugvirkjunar er ekki eingöngu böðuð ljóma fortíðarinnar heldur verður ekki síður mikilvæg þegar horft er til framtíðar.
Flugvirkjafélag Íslands vill nota tækifærið og minna á þá staðreynd að ekkert flug á sér stað án aðkomu flugvirkja. Það er verkefni okkar allra að auka almenna vitund um mikilvægi iðngreinarinnar og þau fjölbreyttu störf sem flugvirkjar sinna.

 

Til hamingju með daginn flugvirkjar þið megið svo sannarlega vera stoltir af ykkar störfum.