top of page

Umsóknarfrestur framlengdur - Opnað hefur verið fyrir umsóknir í orlofshús FVFÍ sumarið 2022. Lokað verður á umsóknir 13. apríl kl 22:00

Helgi Rúnar

Mar 28, 2022

Umsóknarfrestur framlengdur til 13. apríl kl 22:00  - Orlofshús FVFÍ Sumarið 2022.


Opnað hefur verið fyrir umsóknir í orlofshús FVFÍ  sumarið 2022. Lokað verður á umsóknir 10. apríl


Í kjölfarið verður haft samband við þá sem sóttu um varðandi niðurstöðu úthlutunar, og er greiðslufrestur til og með 25. apríl. 


Ef forföll verða hjá þeim sem fengu úthlutun verður haft samband við þann sem næstur var í röðinni.


Opnað verður fyrir lausar helgar í fyrstur kemur, fyrstur fær þann 1. Maí. 


Verð fyrir þetta tímabil er sem hér segir:


Húsafell              28.000kr

Flúðir                  28.000kr

Holtaland            28.000kr

Suðursveit.         19.000kr


Úthlutað verður eftir punktafjölda og félagaaldri ef aðilar eru jafnir af punktum. 60 punktar eru nýttir við þessa úthlutun.


FVFÍ vill beina til félagsmanna sem nýta sér orlofshús að gæta sérstaklega vel að þrifum þeirra. 


Mikilvægt er að þrífa vel alla fleti og yfirborð með sápu eða hreinlætisefnum og spritta svo fletina í kjölfarið.


bottom of page