top of page

Flugvirki í viðhaldsskýli Icelandair - Viðhaldsskýli Keflavík

Helgi Rúnar

Jul 22, 2023

Viðhaldssvið Icelandair ber ábyrgð á rekstri og eftirliti með viðhaldi flugvélaflota Icelandair. 


Hjá Viðhaldssviði Icelandair starfar öflugur hópur sem sér til þess að öryggi, áreiðanleiki og hágæða vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi.


Við leitum að áhugasömum einstaklingum í almenn flugvirkjastörf á stórskoðunum á flugvélaflota Icelandair og öðrum tilfallandi viðhaldstengdum verkefnum. 


Afleysingar í línuumhverfi koma einnig til greina, séu tilskilin réttindi fyrir hendi. Flugvirki kemur til með að vera í samvinnu við samheldinn hóp flugvirkja sem hafa áralanga reynslu í greininni.


Um er að ræða framtíðarstörf og er starfshlutfall er 100%


Æskilegt er að geta hafið störf sem fyrst.


Ábyrgðarsvið:


  • Almenn viðhaldsvinna

  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfnikröfur:


  • Próf í flugvirkjun

  • Part 66 skírteini og sveinspróf er kostur

  • Tegundaráritun er kostur

  • Góð öryggisvitund

  • Góð skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Jákvætt hugafar og góðir samskiptahæfileikar

  • Geta og vilji til að skapa góðan liðsanda

  • Góð tölvukunnátta er æskileg

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.


Umsóknir óskast ásamt ferilskrá eigi síðar en 14. ágúst nk.


Nánari upplýsingar veita:


Pétur Kristinn Pétursson, Manager, peturp@icelandair.is


Hermann Árnason, People Consultant, hermann@icelandair.is

bottom of page