Samruni Byrs og Íslandsbanka

16.02.2012

 Samruni Byrs og Íslandsbanka.

Um síðustu áramót var öll starfsemi Byrs fyrrverandi viðskiptabanka flugvirkjafélagsins og fjölmargra félagsmanna þess sameinuð rekstri Íslandsbanka.

Í framhaldi af þessari sameiningu hefur stjórn félagsins að undanförnu fundað með forsvarsmönnum Íslandsbanka um kjör bæði félagsins og félagsmanna.

Var það mat stjórnar að á þessum tímamótum væri rétt að horfa í allar áttir og hafa því að auki verið haldnir fundir með fulltrúum Landsbankans og Mp banka og á allra næstu dögum er áætlaður fundur með fulltrúum Arion banka.

Um leið og fullmótuð tilboð í bankaviðskipti munu liggja fyrir frá öllum þessum aðilum er ætlun stjórnar að boða til félagsfundar þar sem niðurstöður verða kynntar félagsmönnum og vilji þeirra kannaður.

Bestu kveðjur: Stjórn FVFÍ.