Delta deilir hagnaði með starfsmönnum
12.02.2012
Delta flugfélagið eða öllu heldur stjórn félagsins hefur tekið þá ákvörðun að deila hagnaði flugfélagsins með starfsfólki sínu. Upphæðin er um 264 milljónir dala sem skiptast á 78.000 starfsmenn.
Þetta þýðir að hver starfsmaður fær um 3000 dollara í sitt veski (eða 387 þúsund krónur) United AIrlines og US Airways höfðu gert slíkt hið sama á síðasta ári.
Flugvirkjafélag Íslands - Borgartún 22 - 105 Reykjavík - Sími: 5621610 - Fax: 562 1605 - flug@flug.is
