Jólaball FVFÍ var haldið þann 11. desember
11.12.2011
Giljagaur ásamt félagsmönnum FVFÍ og fjölskyldum þeirra hittust í dag í Borgartúninu og gerðu sér glaðan dag.
Gaman var að sjá alla þessu litlu "verðandi flugvirkja" dansa, syngja og ræða við jólasveininn um jólin og fleiri áhugaverða hluti.
Giljagaur vill fá að þakka öllum börnunum fyrir það hversu þæg og skemmtileg þau voru er hann heimsótti þau.
Nokkrar myndir eru af viðburðinum í myndadálkinum hér neðst á síðunni.
Við þökkum ykkur fyrir samveruna í dag og vonum að þið hafið það gott yfir jólahátíðina.
Kær kveðja, stjórn FVFÍ

Flugvirkjafélag Íslands - Borgartún 22 - 105 Reykjavík - Sími: 5621610 - Fax: 562 1605 - flug@flug.is