Vegna kjaraviðræðna og vinnustöðvunar.
15.06.2011
Fundur samninganefndar FVFÍ og Icelandair hjá sáttasemjara ríkisins var haldinn þriðjudaginn, 14. Júní.
Skoðaðar voru ýmsar leiðir til sátta en ekki náðist að landa samning og ber enn þó nokkuð á milli.
Næsti fundur verður á fimmtudaginn, 16. Júní.
Til upplýsinga um verkfallsdagsetningar.
Ef ekki hefur verið undirritaður samningur þá mun koma til vinnustöðvana eftirtalda daga:
1. Frá 20. júní, kl. 00:01 til 23. júní, kl. 23:59.
2. Ótímabundin vinnustöðvun frá 4. Júlí, kl. 00:01.
Flugvirkjafélag Íslands - Borgartún 22 - 105 Reykjavík - Sími: 5621610 - Fax: 562 1605 - flug@flug.is