Fundur Flugráðs NTF

20.05.2011
Hinn 9. Maí s.l. var haldinn samráðsfundur Flugráðs NTF (Nordic Transport Workers Federation) í Reykjavík.

Þarna voru mættir fulltrúar frá hinum ýmsu stéttarfélögum starfsfólks í flugtengdum iðnaði á Norðurlöndum til að bera saman bækur sínar og hlusta á margvísleg erindi er varða stöðu okkar og sameiginleg hagsmunamál. Fulltrúar FVFÍ, FFÍ og FÍA sátu fundinn af hálfu Íslands og áttum við góðar samræður við fulltrúa flugmanna og flugfreyja um ýmis sameiginleg mál. Þáttakendur fyrir hönd FVFÍ voru Gunnar R. Jónsson og Maríus Sigurjónsson.

Aðalerindi fundarins flutti Magnús Norðdahl, yfirlögfræðingur hjá ASÍ. Hann fjallaði um hvernig reka á vinnudeilur í því alþjóðlega umhverfi sem flugiðnaðurinn hrærist í. Hvernig gott er að undirbúa aðgerðir í tíma og fá með því móti stuðning í formi samúðar aðgerða og vinnustöðvunar hjá þeim félögum okkar sem tengjast NTF á Norðurlöndum. Tekin voru gömul og nýleg dæmi til umræðu. Vægi þess að vera partur af neti NTF er ótvírætt ef til verkfalla kæmi í vinnudeilum.

Einnig voru mikið til umræðu svokölluð félagsleg undirboð (e. Social dumping) sem er ekki óþekkt vandamál í stétt flugvirkja. Felst meðal annars í yfirtöku verktakafyrirtækja á vinnustöðvum/samningum sem voru áður á hendi fastráðinna manna. Fyrir verktaka þýðir þetta yfirleitt tap á réttindum, og auðvelt að vanmeta öryggið sem felst í því að vera tryggður af kjarasamningi. Fyrirtæki sem stunda slíkar yfirfærslur verða seint talin sýna mikinn samfélagsþroska.

Áhugavert erindi var um heilsufarsáhættu, vegna mengunar, við vinnu í kringum flugvélar á flughlaði. Þessa þætti er verið að rannsaka á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn og er hægt að lesa ítarlega um verkefnið á vefsíðunni www.projektcleanair.dk og skýrslu um niðustöður hingað til, á slóðinni www.projektcleanair.dk/Målinger-CPH

Að lokum voru stuttar skýrslur um mál efst á baugi hjá ETF (European Transport Workers Federation) og ITF (International Transport Workers Federation), sem eru n.k. regnhlífarsamtök.

Hægt er að fá meiri upplýsingar um starf NTF á vefsíðunni www.nordictransport.org