Ný stjórn FVFÍ

03.05.2011
Ný stjórn Flugvirkjafélags Íslands var kjörin á aðalfundi félagsins, föstudaginn 29. apríl.

Í stjórn voru kjörnir:
Óskar Einarsson formaður, Maríus Sigurjónsson varaformaður, Reynir G. Brynjarsson gjaldkeri,
Óðinn B. Valdemarsson ritari og Pétur K. Pétursson meðstjórnandi.
Varamenn stjórnar voru kjörnir þeir Sigurgeir Guðjónsson og Gunnar R. Jónsson.
Stjórnin hefur þegar hafið störf og var fyrsti stjórnarfundur haldinn á mánudagskvöld ásamt fulltrúa fráfarandi stjórnar, þar sem farið var yfir þau mál sem eru í gangi. Í nógu er að snúast þar sem kjaraviðræður eru í fullum gangi og fleiri brýn mál sem bíða.