Áskorun til innanríkisráðherra

15.02.2011
Áskorun til innanríkisráðherra

Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) harmar ummæli Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra sem fram komu á vefmiðlinum Eyjan þann 27. janúar síðastliðinn.


(http://m.eyjan.is/2011/01/27/flugstarfsemi-eca-programs-ut-af-bordinu-meiri-hagsmunir-fyrir-minni/).


Þar kemur fram að Ögmundur telur að meiri hagsmunum verð fórnað fyrir minni ef ECA Programs fái að reka viðhaldsþjónustu fyrir herflugvélar hér á landi.

Í ljósi þeirra fjárhagslegur hamfara sem yfir þjóðina hafa gengið að undanförnu, sem meðal annars hefur haft í för
með sér aukið atvinnuleysi, er óskiljanlegt að Ögmundur sjái þau fjölmörgu störf sem skapast við þessa starfsemi sem minniháttar hagsmuni. Starfsemi þessi byggir á viðhaldi flugvéla en ekki beinum hernaði líkt og þegar hervélar Bandaríkjamanna voru hér. Sá rekstrarkostnaður ásamt launum og launatengdum gjöldum sem ECA mun greiða fyrir nemur háum upphæðum sem myndi vera ágætis innlegg í okkar fallvalta hagkerfi.
Sérstaklega þar sem fjármagnið sem um ræðir kemur erlendis frá.

Stjórn FVFÍ skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að endurskoða afstöð sína í þessu máli með fjárhagslega hagsmuni þjóðarinnar í fyrirrúmi.