Lífeyrir

19.11.2010
Landsbankinn hélt mörg námskeið í október um réttindi lífeyrisþega, til að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin.

Höfundur: Stefán Vilhelmsson

Landsbankinn hélt mörg námskeið í október um réttindi lífeyrisþega, til að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin !!

“Sjónum var beint að réttindum lífeyrisþega vegna breytinga sem gerðar hafa verið á réttindum og greiðslum til þeirra frá Tryggingastofnun ríkisins”.
Þegar 2 x 19 prósentin voru tekin af okkur sem erum í lífeyrissjóði FVFÍ, var því haldið fram að greiðslur frá TR myndu bæta okkur það upp !! Annað hefur komið á daginn, því yfirlýsing stjórnar Kjalar í bréfi þann 2. júní s.l. um “að lífeyrisgreiðslur væru verðtryggðar og að TR kæmi til móts við skerðingu með auknum bótum”, hefur reynst lýgi, svo maður noti það orðalag. Það er hart vegið að okkur eldri flugvirkjum, eins og fleirum í þessu samfélagi og kemur fáránleg stjórnsýsla þar beint við sögu!! Landsbankinn er þar engin undantekning með sínum fáránlegu lánum úr lífeyrissjóðum til vonlausra fyrirtækja!! Við flugvirkjar eigum stórupphæðir inni hjá þessari stofnun og ættum að leita allra leiða til að fá það bætt!! 

Gríðarlegur kostnaður er sagður við rekstur lífeyrissjóða, og samkvæmt síðustu fréttum fara 2,1 milljarður í rekstur sex sjóða á ársgrundvelli!! Sterkar raddir eru uppi um að sameina alla lífeyrissjóði undir eina stjórn, er sjálfsagt tími til kominn að svo verði!! 

Stefán Vilhelmsson 
83ja ára lífeyrisþegi í FVFÍ. 
15. nóv. 2010.