Skipta þarf um 40 hreyfla

18.11.2010
Skipta þarf um allt að 40 Rolls Royce flugvélahreyfla í Airbus-A380 farþegaþotum um allan heim.

Skipta þarf um allt að 40 Rolls Royce flugvélahreyfla í Airbus-A380 farþegaþotum um allan heim, að því er forstjóri ástralska flugfélagsins Quantas hefur greint frá. Sprenging varð í einum af fjórum hreyflum A380 farþegaþotu Quantas fyrir skemmstu og varð hún að nauðlenda í Singapore af þeim sökum.

Hreyflarnir sem eru af gerðinni Trent 900 eru notaðir á Airbus-A380 þotum Quantas, Lufthansa og Singapore Airlines. Hver farþegaþota er með fjóra hreyfla.

Alan Joyce, forstjóri Quantas, sagði að eftir viðræður við forsvarsmenn Airbus skildist honum að alls þyrfti að skipta um 40 hreyfla, að því er BBC greinir frá.

Airbus-A380 er stærsta farþegaþota í heimi. Hún getur borið allt að 525 farþega. 38 slíkar vélar eru nú í notkun, þar af eru um 20 með fyrrnefndum Rolls Royce hreyflum, en 234 hafa verið pantaðar hjá Airbus.

Þótt enginn hafi slasast þegar sprengingin varð í einum hreyfli Quantas-vélarinnar er atvikið litið alvarlegum augum. Þetta er alvarlegasta óhappið sem orðið hefur í tengslum við flugrekstur A380-vélanna.

Skoðun:

EASA AD - Engine ? High Pressure / Intermediate Pressure (HP/IP) Structure ? Inspections

http://www.mbl.is