Flugvirkjar kolfella samning

03.03.2010
Félagsfundur í Flugvirkjafélagi Íslands felldi í gærkvöld nýjan kjarasamning sem var gerður við Samtök atvinnulífsins á dögunum fyrir hönd Icelandair.

Félagsfundur í Flugvirkjafélagi Íslands felldi í gærkvöld nýjan kjarasamning sem var gerður við Samtök atvinnulífsins á dögunum fyrir hönd Icelandair.

Um 100 félagsmenn mættu á fundinn og var mikill meirihluti fundarmanna sem vildi fella samninginn. Kristján Kristinsson formaður félagsins, sagði í samtali við fréttastofu í gærkvöld að nú myndu samningaviðræður hefjast að nýju en boðað verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu 22. mars.

http://www.ruv.is/