Engin niðurstaða hjá flugvirkjum
19.02.2010
Fundi Samninganefndar flugvirkja og Icelandair hjá Ríkissáttasemjara lauk á fjórða tímanum í dag.
Fundi Samninganefndar flugvirkja og Icelandair hjá Ríkissáttasemjara lauk á fjórða tímanum í dag. Reynt hefur verið að ná samningum í kjaradeilu þeirra frá því í nóvember en flugvirkjar hafa samþykkt að fara í verkfall á mánudag náist samningar ekki. Engin niðurstaða fékkst á fundinum og hefur annar fundur verið boðaður hjá Ríkissáttasemjara á morgun klukkan tvö.
Klukkan fjögur hófst fundur hjá ríkissáttasemjara vegna deilu flugvirkja hjá Atlanta. Flugvirkjar Atlanta hafa boðað verkfall sem á að hefjast á sunnudag.
frettir@ruv.is
Flugvirkjafélag Íslands - Borgartún 22 - 105 Reykjavík - Sími: 5621610 - Fax: 562 1605 - flug@flug.is