Boeing & Airbus Electrical Hand Skills Námskeið
Könnun var sett inn á www.flug.is rétt fyrir jól til að sjá áhuga flugvirkja á "Electrical Hand Skills" námskeiði. Tóku 52 flugvirkjar þátt í þessari könnun og með hliðsjón af vilja meirihluta þeirra þá hef ég ákveðið að skipuleggja 7 daga Boeing & Airbus "Electrical Hand Skills" námskeið í Maí 2010.
Námskeiðið byrjar Mánudaginn 10.Maí og verður kennt fram á Sunnudaginn 16. Maí 2010.
Kennsla fer fram í húsnæði Flugskóla Íslands, Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.
Námskeiðið verður kvöldnámskeið og byrjar seinnipartinn á daginn því einhverjir eru að vinna sem vilja sækja þetta námskeið eftir vinnu.
Nánari útfærsla á tímasetningu verður þegar nær dregur og ljóst er hvernig menn eru að vinna.
Einungis er pláss fyrir 12 flugvirkja á þessu námskeiði þar sem verkfæri og consumables eru einungis fyrir 12 nemendur.
Fyrir þá sem koma erlendis frá og vantar gistingu þá hef ég fengið sértilboð fyrir þá sem þurfa að nýta sér það.
Skráið ykkur sem fyrst til að missa ekki af þessu tækifæri "Fyrstur kemur fyrstur fær" !
Frekari upplýsingar veitir Hjalti Heiðarsson í síma 899-3121 eða á tölvupósti : hjaltithor@heimsnet.is
Með bestu kveðju,
Hjalti