LAXÁRLUNDUR

Sumarbústaður í Aðaldal

Í Aðaldal í Suður Þingeyjarsýslu er einn bústaður. Leigutími er yfir sumarið. Í húsinu eru tvö svefnherbergi og geta 7-9 manns gist þar í einu (Barnarúm). Húsið er vel búið húsgögnum og öðrum búnaði (örbylgjuofn,hókus pókus stóll,sjónvarp tekur við "video,Ps2,xbox,DVD" tækjum ). Stutt er til Húsavíkur og þar er sundlaug. Sundlaug er líka á Heiðarbæ í Reykjahverfi. Bústaðurinn er stutt frá Laxá og margar skemmtilegar göngu- og aksturleiðir í nágrenni hans, einnig er fótboltavöllur,hálfur körfuboltavöllur og mini golf. (kylfur fylgja bústaðnum)

Veiði:

Hægt er að kaupa mjög ódýr veiðileyfi í Heiðarbæ í Reykjahverfi sem gilda bæði í Langavatn og Kringluvatn. Um er að ræða kr. 1.000 per dag og kr. 600 1/2 dagur. Akstur frá orlofsbústaðnum er uþb 10-15 mín. Þá er hægt að keupa veiðileyfi fyrir kr. 1.000 á bænum Klömbur í Aðaldal til að veiða á austurbakka Laxár, neðan við Laxárvirkjun, en þar er silungssvæði.

Einnig er hægt að veiða í nágrenni Húsavikur og er um að ræða að veiða frítt.

Í Botnsvatni sem er innan bæjarmarka Húsavíkur sunnan undir Húsavíkurfjalli er silungur og best að veiða hann að austanverðu en þar er dýpi mest, ( helst á maðk, en einnig má nota spón) ekkert þarf að borga fyrir veiði í Bornsvatni. Botnsvatn og umhverfi þess fer fram hjá mörgum sem til Húsavíkur koma en svæðið er algjör perla. Umhverfis vatnið er 5 km. gönguleið, nyrst við vatnið er dýpið um 15-20 cm og verður hitastig þess þar allt að 20°C á sólardögum og gaman að leyfa börnum að sulla þar við hornsílaveiðar. Þarna eru snyrtingar ofl.

Rétt sunnan við Húsavík er búið að gera baðlón austan við veginn, þar sem affallsvatn frá orkustöðinni er notað. Vestan við þjóðveginn er aftur á móti stórt og mikið lón einnig get af mannahöndum og þar er búið að sleppa miklu magni af vænum silungi og er öllum frjálst að veiða þar frítt.

Þá eru ónefndar fjörurnar sunnan Húsavíkur bæði í Gvendarbás og í Saltvík en þar veiðist sjóbirtingur og er best að eiga við hann á kvöldin, í logni og á sjávarflóði. Ekkert þarf að borga fyrir veiðar í fjörunum eða afla sér leyfa. Í fjörunum geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi þó þeir hafi ekki áhuga á veiðiskap.

Allir þessir veiðistaðir í landi Húsavíkur eru í um 5-10 mínútna fjarlægð frá orlofshúsinu í Aðaldal.