HEILSÁRSBÚSTAÐUR Á FLÚÐUM

Heilsársbústaður á Flúðum


Á Flúðum er nýbyggður heilsársbústaður í eigu FVFÍ.

Hann er 60 fermetrar, þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús og bað. Svefnpláss fyrir 8 manns. Stór útiverönd er ásamt heitum potti, garðhúsgögnum og gasgrilli. Þetta er mjög glæsilegur bústaður, búinn öllum nútímaþægindum. Í stofu er sjónvarp, myndbandstæki, útvarp og geislaspilari. Þá er nokkurt úrval af bókum og blöðum.

Í eldhúsi er fullkomin eldavél, örbygjuofn og önnur helstu rafmagnstæki. Leiktæki eru á lóðinni.

Stutt er í ýmsa afþreyingu, t.d. er fullbúinn 18 holu golfvöllur rétt hjá bústaðnum. Á Flúðum er sundlaug, hótel, matvöruverslun, banki og pósthús. Skemmtileg dagsferð er t.d. á Gullfoss og Geysi og ekki er nema u.þ.b. hálftímaferð í Laugarás og Skálholt.

Sjá Fleiri myndir