Fréttalisti
Tilkynning um breytt verklag vegna tegundaráritun í Part 66
Frá og með l. apríl 2010, þurfa allir þeir sem ætla að hefja verklegt nám (OJT) eftir bóklegt tegundarnámskeið að sækja sérstaklega um samþykki á verklega náminu til Flugmálastjórnar Íslands áður en verklega námið hefst.
Með breyttu og skýrara verklagi er Flugmálastjórn að reyna að koma til móts við óskir flugvirkja um skýrari útfærslu á verklega þætti týpuréttindanámskeiðsins en einnig fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til tegundaráritunar í EASA Part 66 skírteini.
Nánari útskýringar á þessu fyrirkomulagi er að finna á heimasíðu Flugmálastjórnar Ísland. Flýtileið þangað fæst með því að ýta á linkinn
http://www.caa.is/Einstaklingar/TegundararituniPart66/
Allar fyrirspurnir um skírteinismál flugvirkja skulu berast á netfangið part66@caa.is
Til baka,
