Þurftum ekki að taka upp íþyngjandi regluverk ?
Þurftum ekki að taka upp íþyngjandi regluverk ?
Stendur á ráðuneytinu vegna sumarleyfa.
Arngrímur Jóhannsson, forseti Flugmálafélags Íslands, segir evrópska reglugerð um eftirlit með flugvélum á Íslandi aðallega íþyngjandi fyrir minni flugfélög og sportflug. Sem dæmi hafi þurft að fresta Íslandsmótinu í svifflugi vegna gríðarlegrar pappírsvinnu.
Kom þetta fram í samtali Pressunnar við Arngrím en samgönguráðuneytið lét í september árið 2009 taka upp nokkrar reglugerðir frá Evrópuþinginu sem miða að samþættingu í eftirliti með flugmálum.
Meðal þess sem reglugerðin fjallar um eru auknar kröfur til eftirlits einkaflugvéla auk þess sem réttindi hafa verið tekin af sjálfstæðum flugvirkjum sem hingað til hafi séð um viðhald einkaflugvéla.
Sú vinna sem þeir hafi unnið hafi þar með verið flutt yfir til viðurkenndra viðhaldsstöðva með tilheyrandi kostnaðaraukningu. Í bréfi sem Flugmálafélag Íslands sendi ráðuneytinu segir að ekkert slíkt viðurkennt verkstæði sé til á Íslandi og því þurfi
að senda hreyfla erlendis með miklum tilkostnaði og þá sérstaklega vegna lágs gengis á Íslensku krónunni.
Þá gagnrýnir Flugmálafélagið að Flugmálastjórn hafi ákveðið að taka skoðunar og eftirlitsgjald fyrir loftför sem skráð eru en séu ekki hæf til flugs. Í bréfinu segir:
Við teljum að þessi lög séu ólögleg þar sem Flugmálastjórn framkvæmir ekki eftirlit með þessum loftförum.
Bent er á í bréfinu að í reglugerðinni sé ákvæði um undanþágur og beinlínis mælst til þess að reglurnar verði ekki látnar gilda um einkaflug og smærri flugrekstur.
Vill Flugmálafélagið auk þess færa eftirlit frá Flugmálastjórn Íslands yfir til einkaaðila sem Flugmálastjórn hefði eftirlit með auk þess að fá einfaldari reglur um flugskírteini fyrir flugmenn sem ætla eingöngu að fljúga á Íslandi.
Núverandi reglugerð er allt of viðamikil.
Bent er á að flugöryggi á Íslandi hafi verið gott undanfarna áratugi og mjög fá slys orðið vegna mistaka flugvirkja.


Engin álit