Viðbótar upplýsingar varðandi steinasafnið.
Greinin hér fyrir neðan er viðbót við frétt í ný útkomnu fréttabréfi FVFÍ.
Þetta sterinasafn er stór hluti af ævistarfi Flugvirkjans Dags Óskarssonar (1917-2002). Í ágúst 1944 fór Dagur til Bandaríkjanna til flugvirkjanáms í Cal-Aero Institute í Glendale í Californiu. Dagur lauk námi í desember 1945 en mun hafa starfað við flugvirkjun hjá bandarísku flugfélagi nokkra mánuði að því loknu.
Eftir heimkomuna hóf hann starf, fyrst hjá Loftleiðum en síðan rak hann eigin verkstæði. Á meðan hann var hjá Loftleiðum var hann við almenn flugvirkjastörf, bæði í Reykjavík og við síldarleitarflugvél fyrir orðan.
Dagur var stofnfélagi og ritari í fyrstu stjórn Flugvirkjafélags Íslands og gegndi stjórnar og trúnaðarstörfum fyrir Flugvirkjafélagið fram yfir 1950.
Hann stofnaði húsgagnaverkstæði, sem hann rak fram í september 1961 en hvarf þá aftur til flugvirkjastarfa en nú hjá Flugfélagi Íslands. Þar gekk hann í öll venjuleg flugvirkjastörf en þó eitt, sem var nokkuð sérstakt. Þannig var að vorið 1964 tók Flugfélagið á leigu Skymaster-flugvél frá Englandi, sem notuð var aðallega í innanlandsflug til Akureyrar og Egilsstaða.
Flugfélagið hugðist spara í rekstrinum með því að hafa aðeins tvo flugmenn í flugstjórnarklefa, sem bæta skyldu á sig störfum flugvélstjóra á þessari vél. Til lausnar ágreinings um þetta milli Flugfélagsins og Flugvirkjafélagsins var samþykkt að flugvirki væri með vélinni á flugi þar til úrskurður Félagsdóms félli. Þessum störfum gegndi Dagur aðallega sumarið 1964. Auk þessara ferðalaga innanlands gegndi hann einnig flugvirkjastörfum í Grænlandi og víðar. Í samdrætti í atvinnu flugvirkja 1968 lét Dagur af störfum hjá Flugfélaginu en flutti með fjölskyldu sína til Bandaríkjanna, þar sem var við smíðar í 8 ár. Hann flutti aftur heim árið 1976 og var eftir það við störf á trésmíðaverkstæði á Keflavíkurflugvelli.
Eftir að hann flutti heim "lenti hann grjótinu", eins og hann orðaði það sjálfur. Í tómstundum sínum ferðaðist hann um landið og safnaði ógrynni af steinum, sem hann svo slípaði og gerði úr allskonar listaverk. Ég heimsótti Dag á heimili hans í Efstasundi og skoðaði steinasafn hans og tók þar nokkrar myndir.
Þar fylltu listaverkin stofur hans og ganga. Eftir hans dag tók sonur hans við safninu og vann við það nokkur ár.
Bestu kveðjur,
Oddur Ármann Pálsson / oddurap@internet.is


Engin álit