Góðir Íslendingar
Góðir Íslendingar
Ég má til með að eiga nokkur orð um málefni síðustu daga, á ég þar við lög sem háttvirt Alþingi setti síðastliðinn mánudag á verkfall flugvirkja. Enginn virðist vilja fara með rétt mál, hvorki það sem varðar laun okkar eða það sem stóð til að semja um. Ég veit að það selur betur og þjónar hagsmunum Icelandair betur að tala um 630.000 kr. í laun og kröfu upp á 25 % launahækkun. Það er hins vegar ekki raunveruleikinn. Sannleikurinn er sá að flugvirki með sveinspróf er með 313.000 kr. Í laun á mánuði og getur eftir 15 ár í starfi náð 398.000 kr. í laun. Í þessu sambandi er rétt að skilgreina hvað felst í hugtakinu laun, en sá skilningur virðist vefjast fyrir ýmsum, meðal annars æðstu handhöfum framkvæmdavalds. Laun eru það sem þú berð úr býtum eftir 173,33 vinnutíma á mánuði. Tekjur eru heildarlaun þar með talin vaktaprósenta og yfirvinna. Yfirvinna er háð þörfum atvinnurekenda og getur breyst dag frá degi og því ekki hægt að ganga að henni vísri til framfærslu.
Kröfur flugvirkja í þessari launabaráttu byggjast á því að frá árinu 2008 hefur framfæsluvísitalan hækkað um 25% og íslenska krónan fallið um að minnsta kosti um 50%. Fyrstu kröfur okkar voru 25% hækkun en fljótlega var krafan komin niður í 15%. Því skal haldið til haga að í kjarasamningi árið 2008 var ekki samið um launahækkanir flugvirkja, heldur eingöngu áréttuð réttindi flugvirkja Icelandair í erlendum verkefnum og á línuvinnu í Keflavík
Eins og alþjóð veit, gekk illa að ná fram kröfu um 15% launahækkun. Eftir tuttugu og einn fund með sáttasemjara var staðan svona:
Þann 1. nóvember 2009 áttu laun að hækka um 2%. Þann 1. júni eiga laun að hækka um 2,5%, 1.desember eiga laun að hækka um 1,25%. Síðan var hundraðstöluhækkun, miðað við byrjunarlaun, sem var metin af báðum aðilum á 0,25 %. Þá skulu dagpeningar hækka um 15 usd á dag frá 1. apríl sem var metin af báðum aðilum á 1%. Þessar hækkanir gera samtals 7%. Einnig bjóða Icelandair 3,25% fyrir að seinka brottför úr Keflavík og lengja vinnutímann. Þar að auki átti næturvakt flugvirkja að gefa eftir mat sinn á nóttunni.Þar sem þessi tími er í næturvinnu metum við hann á ca 3% sem dregst frá. Sitja þá eftir 7,25%.
Samningamenn Icelandair höfðu gefið okkur einn og hálfan klukkutíma til að ganga að þessum skilmálum eða þeir myndu lækka tilboð sitt í 5,75 %. Þegar svona var komið kom sáttasemjari með tillögu um 1 % í viðbót til að reyna til þrautar að ná samningum. Icelandair menn samþykktu en flugvirkjar ekki.
Til samanburðar má benda á að flugvirkjar Atlanta hafa sótt kjarabætur upp á ca 14%, en það var í lagi hjá stjórnvöldum.
Á flugvirkja Icelandair voru hins vegar sett lög eftir um það bil 16 klukkustundir - þrátt fyrir að önnur flugfélög fljúgi bæði með fólk og vörur. Ef ég man rétt þá voru sjómenn búnir að vera tvær vikur í verkfalli 2001 áður en það vari farið að ógna þjóðarhagsmunum.
Þetta er sú ríkisstjórn sem ætlaði að slá skjaldborg um heimilin í landinu. Þess í stað eru starfandi stéttir sviptar lögbundnum rétti sínum til kjarabaráttu.
Skömm ykkar er mikil og ævarandi.
Guðjón Valdimarsson
formaður flugvirkja.


Engin álit