Áskorun til Flugmálastjórnar Íslands
Félagsfundur FVFÍ sem að haldinn var þann 16. október síðastliðinn samþykkti eftirfarandi áskorun til Flugmálastjórnar Íslands og hefur hún nú verið send stofnuninni:
Áskorun
Félagsfundur Flugvirkjafélags Íslands haldinn þann 16. október 2008, skorar hér með á Flugmálastjórn Íslands að hefja þegar í stað athugun á því hvort að merkjanlegur munur sé á því hvort að bilanir í íslenskum loftförum séu frekar skrifaðar upp af flugmönnum á leið í heimahöfn ( Homebase) frekar en á leið á staði þar sem að erfiðara er um vik, eða dýrara að koma við viðgerðum.
Ástæða þessarar áskorunar er sú, að komið hefur í ljós við athugun hjá aðildarsamtökum okkar AEI (Aircraft Engineers International) að allt að 85% bilana sem að upp koma í flugvélum eru skrifaðar upp á heimleið.


Engin álit